Glæsilegt minningarmót! Davíð Kjartansson bar sigur úr býtum á minningarmóti um Gylfa Þórhallsson.
Þriðjudagur, 25. maí 2021
Um hvítasunnuhelgina fór fram minningarmót Gylfa Þórhallsson skákmeistara og forystumann í norðlensku skáklífi um áratuga skeið, en Gylfi féll frá þann 29. mars á síðasta ári.
Mótið hófst föstudaginn 21. maí og lauk á annan dag hvítasunnu. Tefldar voru tólf umferðir og meðal þátttakenda voru tveir stórmeistarar og þrír alþjóðlegir meistarar, keppendur alls 58.
Það var alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson sem bar sigur úr býtum með 10 vinninga. Stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson var í öðru sæti með 9 vinninga og alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson varð þriðji með 8.5 vinning. Þrír Akureyringar deildu svo fjórða sætinu með Jóhanni Hjartarsyni stórmeistara, þeir Jón Kristinn Þorgeirsson, Símon Þórhallsson og Rúnar Sigurpálsson. Fengu þeir allir 8 vinninga.
Áskell Örn Kárason vann sigur í öldungaflokki (+65) og Elsa María Kristínardóttir í kvennaflokki. Í flokki skákmanna með færri en 2000 atskákstig varð Mikael Jóhann Karlsson efstur og í flokki skákmanna með færri en 1600 sigraði Benedikt Þórisson.
Mótið var í alla staði vel heppnað. Teflt var í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi, en aðstæður þar eru e.t.v. þær bestu sem bjóðast fyrir skákmót af þessu tagi.
Margir af keppendum og aðstandendum mótsins lýstu yfir áhuga á því að efna til nýs móts að ári.
Stóra myndin er frá verðlaunaafhendingunni. Á minni myndunum má sjá annarsvegar sjá sigurvegarann Davíð Kjartansson að tafli og hinsvegar Akureyrarmeistarann Rúnar Sigurpálsson og að baki honum Jóhann Hjartarson stórmeistara.
Sigurður Arnarson tók myndirnar.
Öll úrslit og staðan á Chess-results.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.