Sveitakeppni grunnskóla: Öruggur sigur Glerárskóla

Skólaskákmót Ak. Yngri flokkur 2011 470

Fimm sveitir mættu til leiks í sveitakeppni grunnskóla á Akureyri sem fram fór í dag. Fyrirfram mátti gera ráð fyrir að sveitir Glerárskóla og Brekkuskóla myndu bítast um sigurinn og þegar þessar sveitir mættust í síðustu umferð höfðu þorparar betur, fengu 3 vinninga gegn einum. Þeir unnu því mótið með 14Skólaskákmót Ak. Yngri flokkur 2011 467 vinningum af 16 mögulegum.

Skólaskákmót Ak. Yngri flokkur 2011 480Sveitina skipuðu þeir Hersteinn Heiðarsson, Hjörtur Snær Jónsson, Logi Rúnar Jónsson og Birkir Freyr Hauksson.

Úrslit urðu annars þessi:

1. Glerárskóli 14
2. Brekkuskóli A 11,5
3. Lundarskóli 9,5
4. Brekkuskóli B 3
5. Valsárskóli 2

Þessir hrepptu páskaegg í borðaverðlaun:

1.borð: Jón Kristinn Þorgeirsson, Lundarskóla, 3,5
2.borð: Andri Freyr Björgvinsson, Brekkuskóla A, 4
3.borð: Logi Rúnar Jónsson, Glerárskóla 4
4.borð: Birkir Freyr Hauksson, Glerárskóla 4


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband