Hausthraðskákmót barna og unglinga: Jón Kristinn meistari.
Þriðjudagur, 21. desember 2010
Hausthraðskákmót barna og unglinga var háðsunnudaginn 19. desember. Þátttaka var fremur dræm að þessu sinni og misstu þar margir af vænni pizzusneið, en þátttakendum fengu pizzu frá Jóni Spretti að leikslokum. Þá fengu efstu menn lítinn jólapakka í verðlaun.
Sigurvegari varð Jón Kristinn Þorgeirsson með 6,5vinning af 7 mögulegum, annar varð Andri Freyr Björgvinsson með 6 vinninga og Logi Rúnar Jónsson þriðji með 5.5. Þessir þrír skáru sig nokkuð úr hópi annarra keppenda, en næsti komu þeir Gunnar A. Arason og Guðmundur Aron Guðmundsson með 3 vinninga. Telft var í einum flokki, 15 ára og yngri.
Næst á dagskrá er Jólahraðskákmótið þriðjudaginn 28. desember k. 19:30
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Úrslit | Breytt s.d. kl. 20:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.