Mótaröđ – Áskell Örn öruggur sigurvegari í heildarkeppninni
Föstudagur, 17. desember 2010
Í haust bryddađi félagiđ upp á ţeirri nýung ađ skeyta hinum hefđbundnu hrađskákmótum félagsins saman í mótaröđ. Fyrirkomulagiđ er ţannig ađ vinningum er safnađ frá fyrstu umferđ til ţeirrar síđustu (alls sjö umferđir núna í haust) og ţeir síđan lagđir saman. Samanlagđir vinningar rađa svo keppendum í sćti. Tilgangur breytingarinnar var sá ađ fastsetja punkt í mótadagskrá félagsins sem hćgt vćri ađ ganga ađ sem vísum, annan og ţriđja fimmtudag hvers mánađar í tilfelli mótarađarinnar, og í leiđinni búa til skemmtilega keppni ţar sem frammistađa í einu móti er ekki lykilatriđi heldur skiptir einnig máli ađ mćta sem oftast.
Ađ mati ţess er ţetta ritar hefur nokkuđ vel tekst til. Ţátttaka hefur veriđ međ ágćtum og almenn ánćgja virđist ríkja međal keppenda. Keppnin sjálf hefur veriđ nokkuđ spennandi og ef glöggt er ađ gáđ hafa nánast allir keppendur a.m.k. einu sinni orđiđ öllum samkeppendum sínum ađ bráđ.
Keppnin, eins og reyndar allt starf félagsins, hefur brúađ bil milli margra kynslóđa. Aldursmunur á milli keppenda hefur ţannig náđ allt ađ sex áratugum. Vonandi hefur ţađ orđiđ til ţess ađ ţeir sem yngri eru hafa notiđ góđs af ţví ađ tefla viđ sér reyndari menn og ţeir sem eldri eru hafa vafalaust notiđ góđs af ţví ađ reyna ađ halda í viđ hrađa ungu kynslóđarinnar.
Viđ yfirferđ mótstöflu haustannarinnar má vel merkja kynslóđaskipti, eđa a.m.k. viđbót sem er ađ verđa í hópi sterkustu skákmanna félagsins. Sú ţróun er afar jákvćđ og mun vonandi sjást enn betur viđ lestur töflu vorannarinnar.
Til nánari glöggvunar kemur hér örlítil tölfrćđi sem undirritađur hefur tekiđ saman. Ađ sjálfsögđu er hún reist á lítiđ eitt hćpnum forsendum eins og ćtlast er til, ţar sem einhverju getur munađ á fjölda skáka á milli umferđa. Eins er mögulega lítiđ ađ marka tölfrćđi hjá ţeim sem tekiđ hafa ţátt í fáum umferđum.
Fjöldi móta | Međaltal vinninga | ||
1 | Áskell Örn Kárason | 6 | 11,08 |
2 | Mikael J. Karlsson | 6 | 8,75 |
3 | Smári Ólafsson | 6 | 8,08 |
4 | Sigurđur Arnarson | 4 | 7,50 |
5 | Tómas Veigar | 7 | 7,21 |
6 | Sigurđur Eiríksson | 7 | 6,86 |
7 | Jón Kristinn | 1 | 6,50 |
8 | Haki Jóhannesson | 4 | 6,25 |
9 | Sveinbjörn Sigurđss. | 1 | 5,00 |
10 | Ari Friđfinnsson | 1 | 4,00 |
11 | Karl Steingrímsson | 3 | 3,50 |
12 | Andri Freyr | 1 | 3,50 |
13 | Atli Benediktsson | 4 | 2,88 |
14 | Bragi Pálmason | 2 | 1,00 |
Sjálfsagt er ýmsu hćgt ađ breyta og margt hćgt ađ laga. Hugsanlega felst of mikil skuldbinding í ţví ađ láta allar umferđir gilda ađ jöfnu. Mögulega fćlist sanngirni í ţví ađ bćta viđ fleiri verđlaunaflokkum. Skemmtilegt gćti veriđ ađ auka fjölbreytni međ ţví ađ tefla t.d. annađ hvert mót međ viđbótartíma (3.02). Fast í hendi er ţó ađ tillögum er hćgt ađ koma til stjórnarinnar á skákfundum eđa međ ţví ađ senda rafpóst á netfangiđ askell@simnet.is
Undirritađur ţakkar samkeppendum fyrir skemmtilega keppni í haust og vetur.
Tómas Veigar.
_______________________________________________________________________
Sjöunda- og jafnframt lokaumferđ mótarađarinnar fór fram í gćr. Átta skákmenn mćttu til leiks og tefldu ađ vanda tvöfalda umferđ, allir viđ alla.
Áskell Örn breytti í engu út af vananum og lagđi nćstum ţví alla andstćđinga sína ađ velli og var ţví međ 13 vinninga af 14. Smári Ólafsson sem fariđ hefur vaxandi í keppninni var í öđru sćti međ 11 vinninga og í ţriđja sćti var keppandi númer sjö í töfluröđinni sem í sjöundu umferđ vann sjö skákir. Hvađ eru mörg sjö í ţví ?
Úrslit:
Áskell Örn Kárason 13 vinningar af 14.
Smári Ólafsson 11
Tómas Veigar Sigurđarson 7
Sigurđur Eiríksson 6˝
Haki Jóhannesson 5˝
Atli Benediktsson 5
Karl Egill Steingrímsson 4˝
Andri Freyr Björgvinsson 3˝
Opiđ hús - Mótaröđ | 16. desember 2010 | |||||||||
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | Samtals | ||
1 | Karl Steingrímsson | 1 0 | 1 0 | ˝ 1 | 0 0 | 0 0 | 0 1 | 0 0 | 4˝ | |
2 | Haki Jóhannesson | 0 1 | 1 1 | 0 1 | 0 1 | ˝ 0 | 0 0 | 0 0 | 5˝ | |
3 | Atli Benediktsson | 0 1 | 0 0 | 1 1 | 0 0 | 0 1 | 1 0 | 0 0 | 5 | |
4 | Andri Freyr | ˝ 0 | 1 0 | 0 0 | 0 0 | 0 1 | 0 1 | 0 0 | 3˝ | |
5 | Smári Ólafsson | 1 1 | 1 0 | 1 1 | 1 1 | 1 1 | 1 1 | 0 0 | 11 | |
6 | Sigurđur Eiríksson | 1 1 | ˝ 1 | 1 0 | 1 0 | 0 0 | 0 1 | 0 0 | 6˝ | |
7 | Tómas Veigar | 1 0 | 1 1 | 0 1 | 1 0 | 0 0 | 1 0 | 0 1 | 7 | |
8 | Áskell Örn | 1 1 | 1 1 | 1 1 | 1 1 | 1 1 | 1 1 | 1 0 | 13 |
Úrslitin í mótaröđinni eru ţá ljós. Áskell Örn hefur sigrađ međ nokkrum yfirburđum, fékk 66˝ vinning úr sex umferđum. Mikael Jóhann Karlsson, sem átti ţví miđur ekki heimangengt í gćr, er í öđru sćti međ 52˝ vinning úr sex umferđum. Tómas Veigar Sigurđarson er svo í ţriđja sćti međ 50˝ vinning úr sjö umferđum.
Mótaröđ - Haust 2010 | Stađan | ||||||||
23.sep | 14.okt | 21.okt | 11.nóv | 18.nóv | 9.des | 16.des | Samtals | ||
1 | Áskell Örn Kárason | 11 | 11 | 10,5 | 10 | 11 | 13 | 66,5 | |
2 | Mikael J. Karlsson | 8,5 | 11 | 10 | 5 | 9 | 9 | 52,5 | |
3 | Tómas Veigar | 7,5 | 8,5 | 8 | 6,5 | 6 | 7 | 7 | 50,5 |
4 | Smári Ólafsson | 5,5 | 7 | 7 | 7,5 | 10,5 | 11 | 48,5 | |
5 | Sigurđur Eiríksson | 8,5 | 9 | 8 | 4 | 4 | 8 | 6,5 | 48 |
6 | Sigurđur Arnarson | 9 | 7 | 7,5 | 6,5 | 30 | |||
7 | Haki Jóhannesson | 6 | 9 | 4,5 | 5,5 | 25 | |||
8 | Atli Benediktsson | 2,5 | 2,5 | 1,5 | 5 | 11,5 | |||
9 | Karl Steingrímsson | 3,5 | 2,5 | 4,5 | 10,5 | ||||
10 | Jón Kristinn | 6,5 | 6,5 | ||||||
11 | Sveinbjörn Sigurđss. | 5 | 5 | ||||||
12 | Ari Friđfinnsson | 4 | 4 | ||||||
13 | Andri Freyr | 3,5 | 3,5 | ||||||
14 | Bragi Pálmason | 1 | 1 | 2 | |||||
Fjöldi ţátttakenda | 7 | 8 | 8 | 7 | 7 | 8 | 8 | ||
Ţátttakendafjöldi ađ međaltali | 7,57 |
Nćst á dagskránni er Hausthrađskákmót unglinga á sunnudaginn kl. 14. Ţví nćst er Jólahrađskákmótiđ, ţriđjudaginn 28. desember kl. 19:30. Ný mótaröđ hefst svo á nýju ári.
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Fréttir, Úrslit | Breytt s.d. kl. 08:09 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.