Færsluflokkur: Atskákmót Akureyrar

Smári og Jón efstir og jafnir

Um helgina lauk spennandi atskáksmóti Skákfélags Akureyrar. Ellefu keppendur mættu til leiks og tefldu 7 skákir eftir Monradkerfi. Í lokin munaði aðeins einum vinningi á 1. sæti og 5. sæti. Leikar fóru svo að Smári Ólafsson og Jón Kristinn Þorgeirsson...

Atskákmót Akureyrar hefst á morgun

Mótið hefst kl. 20 fimmtudaginn 7. nóvember í Skákheimilinu. Tefldar verða 25 mínútna skákir, 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Þrjár umferðir verða tefldar á fimmtudaginn, en fjórar sunnudaginn 10. nóvember. Þá hefst taflið kl. 13. Að venju áskilur...

Sigurður Arnarson öruggur sigurvegari á Akureyrarmótinu í atskák

Síðari hluti Akureyrarmótsins í atskák var tefldur í kvöld. Sigurður Arnarson, sem hafði fullt hús eftir fyrri hlutann hélt uppteknum hætti og lagði alla andstæðingasína í síðari hlutanum að velli. Sigurður sigraði því á mótinu af fádæma öryggi, með sjö...

Sigurður Arnarson efstur með fullt hús á Akureyrarmótinu í atskák

Akureyrarmótið í atskák hófst í dag. Tólf keppendur taka þátt og tefla 7 umferðir eftir svissnesku monrad-kerfi. Atskákmeistari Akureyrar frá því í fyrra, Sigurður Arnarson leiðir mótið með fullu húsi að loknum fjórum umferðum. Áskell Örn Kárason kemur...

Akureyrarmótið í atskák hefst á sunnudaginn

Akureyrarmótið í atskák 2010 hefst sunnudaginn 21. nóvember kl. 14. Tefldar verða sjö umferðir eftir monrad kerfi með 25 mínútna umhugsunartíma. Dagskrá: Sunnudagur 21. nóvember kl. 14:00 1.- 4. umferð Þriðjudagur 23. nóvember kl. 20:00 5.- 7 umferð...

Akureyrarmót í atskák 2009.

sunnudagur 22.nóv.09 Smári Ólafsson, Sigurður Arnarson og Sigurður Eiríksson. Sigurður Arnarson varð Akureyrarmeistari í atskák 2009, þegar hann vann öruggan sigur á mótinu, hlaut 6 vinninga af 7. Annar var Sigurður Eiríksson með 5 v. Í þriðja sæti varð...

Akureyrarmót í atskák 2008

mánudagur 17.nóv.08 Áskell, Sigurður og Tómas. Sigurður Eiríksson varð Akureyrarmeistari í atskák sem lauk í gær, eftir afar jafna og spennandi keppni, þar sem keppendur skiptust um forystu í mótinu. Að loknum fjórum umferðum var Tómas Veigar efstur með...

Akureyrarmót í atskák 2007

sunnudagur 16.des.07 Gylfi, Áskell og Þór Áskell Örn Kárason sigraði glæsilega á Akureyrarmótinu í atskák sem lauk í dag, hann fékk 7 vinninga af 7 mögulegum. Áskell hafði mikla yfirburði, því næsti keppandi fékk 4,5 vinning. Röð efstu keppenda varð...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband