Haustiđ er tíminn!

Ţađ má međ sanni segja ađ skáktíđin nú í sumarlok byrji međ látum! Skákfélagsmenn láta víđa til sín taka í öđrum sóknum og nú styttist í ađ ţeir geri ţađ líka heimafyrir. Í Reykjavíkurhreppi stendur Haustmót TR nú yfir, öđru nafni Gagnaveitumótiđ. Ţar tefla í efsta flokki félagar Stefán Bergsson og Gylfi Ţórhallsson. Gylfi byrjađi fremur treglega, en er ađ sćkja í sig veđriđ, en Stefán hefur átt meira láni ađ fanga hingađ til. Ţeir félagar tefla frestađa skák sína úr fimmtu umferđ einmitt í kvöld. Fylgjast má međ árangri ţeirra hér.

logi-stebbi.jpg_k-heimir.jpgsimon_einar_1216831.jpgNú um helgina hélt hiđ nýsameinađa félag GMH - eđa öllu heldur Ţingeyjararmur ţess - hiđ árlega Framsýnarmót á Breiđumýri í Reykjadal. Ţar voru keppendur alls 29 og mótiđ allt hiđ ánćgjulegasta.  Skákfélagsmenn áttu nokkurn ţátt í ţví og stóđu fyllilega undir vćntingum ađdáenda sinna. Áskell Ö(ldungur) Kárason var ţar efstur viđ annan mann, en ţeir Sigurđur Eiríksson (5 af 7), Logi Rúnar Jónsson (4,5), Andri Freyr Björgvinsson (4) og Símon Ţórhallsson (3,5) bćttu allir viđ sig skákstigum međ árangri sínum. Haraldur Haraldsson (4,5) var um ţađ bil á pari og endađi í fjórđa sćti. Ađeins Stefán Bergsson (4) tapađi nokkrum stigum, en bćtti ţađ tap upp međ afrekum á öđrum sviđum. Hann átti unniđ á Áskel í lokaskákinni, en kaus ađ fylgja ţví ekki eftir. Allt má sjá um úrslit mótsins hér.  Myndum er stoliđ af skák.is.

Ţá má ekki gleyma okkar mönnum suđur međ sjó, (ţ.e. suđur međ Adríahafi - ţar heitir Svartfjallaland), en ţeir Mikael Jóhann Karlsson og Jón Kristinn Ţorgeirsson, ungstirni okkar, etja ţar kappi viđ helstu ungmenni Evrópu á skáksviđinu í EM ungmenna, sem hófst í gćr, 29. sept. Ţá náđi Jón jöfnu viđ mun stigahćrri menn, en Mikael mátti játa sig sigrađan gegn öđru ofurefli.Fylgjast má međ framgangi ţeirra félaga í dag hér.

En ţá er komiđ ađ ađalmálinu, HAUSTMÓTI SKÁKFÉLAGS AKUREYRAR, sem hefst nú á fimmtudaginn. Dagskrá verđur sem hér segir:

Fimmtudagur 3. október kl. 20.00 1-2. umferđ

Föstudagur 4. október kl. 20.00 3. umferđ

Laugardagur 5. október kl. 13.00 4.umferđ

Sunnudagur 6. október kl. 13.00 5. umferđ

(Hlé vegna Íslandsmóts Skákfélaga)

Laugardagur 19. október kl. 13.00 6. umferđ

Sunnudagur 20. október kl. 13.00 7. umferđ

Fyrirkomulag mótsins er áformađ ţannig, ađ fyrst verđa tefldar tvćr atskákir, en síđan fimm skákir međ umhugsunartímanum 60 mínútur á skákina, auk ţess sem 30 sekúndur bćtast viđ fyrir hvern leik. Ţó áskilur mótsstjórn sér rétt til ađ gera á ţessu fyrirkomulagi minniháttar breytingar ef nauđsyn muni krefjast ţess ţegar fjöldi ţátttakenda liggur fyrir.    Skráning er hjá formanni félagsins í askell@simnet.is, eđa á skákstađ, í síđasta lagi 15. mínútum fyrir upphaf fyrstu umferđar. 


Frćđslu- og skemmtikvöld á fimmtudag

img_4588_1216467.jpgOpiđ hús verđur hjá Skákfélaginu á morgun, fimmtudaginn 26. september, kl. 20.00.  Tvö skemmtiatriđi eru ţegar komin á dagskrá:

1.Norđurlandamót öldunga á Borgundarhólmi 7-16. september. Áskell segir ferđasögu og sýnir nokkrar skákir. Litskyggnusýning.

2. Íslandsmót Skákfélaga 10-13. október nk. Fjallađ um vćntanlegt mót og ţátttöku Skákfélagsins.  Ţeir sem hyggja á ţátttöku eru sérstaklega hvattir til ađ mćta og láta til sín taka. M.a. verđur rćtt um ferđa- og gistitilhögun. 


Fjórđungsmót á morgun

Fyrsta 15 mínútna mót á ţessari skáktíđ verđur haldiđ á morgun, sunnudaginn 23. september. Opiđ öllum sem vettlingi geta veldiđ og hinum líka.

Sjáumst í skákheimilinu kl. 13

Stjórnin


Mótaröđin:

Áskell og Jón Kristinn efstir í annarri lotu. Önnur umferđ mótarađarinnar góđkunnu var háđ í gćrkvöldi. Níu kappar mćttu til leiks og börđust hetjulega. Símon Ţórhallsson var skarpastur í upphafi og vann sex fyrstu skákir sínar en lét viđ svo búiđ sitja....

Mótaröđ á fimmtudag

Nú, fimmtudaginn 19. september verđur önnur umferđ hinnar sívinsćlu mótarađar háđ í Skákheimilinu. Ţátttaka öllum heimil. Kaffi á könnunni og viđ hefjum tafliđ kl. 20.

Kveđja frá Borgundarhólmi

Bestu kveđjur á ađalfund SA í dag! Hvet alla sem vettlingi geta valdiđ til ađ mćta og taka ţátt í störfum fundarins. Vonandi eigum viđ gott starfsár í vćndum. Sjálfum gengur mér skikkanlega hér á Norđurlandamóti öldunga í Allinge, er í 2-4 sćti ţegar...

Ađalfundur

Áđur auglýstur ađalfundur Skákfélagsins verđur haldinn nćstkomandi sunnudag, 15. september klukkan 13. Hvetjum sem flesta til ţess ađ láta sjá sig.

Mótaröđin

Í kvöld fór fram 1. umferđ Mótarađarinnar. 9 keppendur mćttu til leiks og tefld var einföld umferđ. Mótiđ var jafnt og spennandi allan tímann og úrslit réđust ekki fyrr en í síđustu umferđ. Úrslit má sjá hér ađ neđan. Sigurđur Arnarson 6,5 Haraldur...

Mótaröđin og úrslit frá sunnudegi

Á morgun verđur fyrsta umferđ í nýrri mótaröđ fram hjá Skákfélaginu. Tefldar verđa hrađskákir og vinningum safnađ til áramóta. Ţá verđur krýndur mótarađameistari! Á sunnudaginn fór fram 15 mínútna mót og verđur eitt slíkt haldiđ í hverjum mánuđi í allan...

Ćfingar í almennum flokki ađ hefjast

Í dag kl. 16.30 verđur innritun í almennan flokk 7-12 ára barna. Ćfingar verđa framvegis vikulega á ţessum tíma, 16.30-18.00. Ađalleiđbeinandi verđur Andri Freyr Björgvinsson.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband