Hraðskákmót Akureyrar haldið 14. mars nk.
Sunnudagur, 28. febrúar 2021
Hið árlega Hraðskákmót Akureyrar verður haldið sunnudaginn 14.mars og hefst kl. 13.00. Samkvæmt Þórólfi mega allt að 50 keppendur taka þátt og er mótið að sjálfsögðu öllum opið. Tímamörk verða 4-2 (fjórar mínútur auk tveggja sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik).
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið "Hraðskákmeistari Akureyrar 2021". Núverandi meistari er Mikael Jóhann Karlsson.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt 4.3.2021 kl. 07:26 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.