Íslandsmót öldunga
Sunnudagur, 25. ágúst 2019
Athygli norðlenskra öldunga er vakin á þessu móti. Ef þátttaka fæst hér fyrir norðan er möguleiki á að tefla fyrstu tvær umferðirnar hér, aðra eða báðar. Þeir sem hyggja á þátttöku verða þó að vera tilbúnir til að tefla í Reykjavík dagana 19-22. september. Við hvetjum (h)eldri skákmenn til þátttöku í þessu móti og að skrá sig hið fysta.
Upplýsingar um mótið:
Íslandsmót öldunga (65+) verður haldið í fyrsta skipti sem kappskákmót 5.-22. september nk. Mótið verður haldið í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Tefldar verða sex umferðir á mótinu. Reynt er að koma til móts við þarfir landsbyggðarmanna með fyrirkomulagi mótsins. Tvær hálf vinnings yfirsetur í umferðum 1-4 eru leyfðar.
Fyrstu þrjár umferðirnar eru haldnar með viku millibili á fimmtudögum (5.-19. september). Mótinu lýkur svo með helgarlotu (20.-22. september).
Möguleiki er að Norðanmenn geti teflt 1. og jafnvel einnig 2. umferð fyrir norðan við hvorn annan þ.e. ef þátttaka þeirra verður nægjanleg góð.
Dagskrá:
1. umferð Fimmtudagurinn 5. september 16:00
2. umferð Fimmtudagurinn 12. september 16:00
3. umferð Fimmtudagurinn 19. september 16:00
4. umferð Föstudagurinn 20. september 16:00
5. umferð Laugardagurinn 21. september 13:00
6. umferð Sunnudagurinn 22. september 13:00
Umhugsunartími: 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik.
Mótið er opið fyrir alla 65 ára og eldri. Fæddir 1954 eða fyrr.
Þátttökugjald: 10.000 kr. á keppenda
Verðlaun:
1. 120.000 kr. ferðastyrkur á alþjóðlegt öldungamót
2. 50.000 kr.
3. 30.000 kr.
Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfinu.
Veit verða sérverðlaun (verðlaunagripir) fyrir hver fimm ár (70+, 75+ o.s. frv.).
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.