Unga Ísland vann gamalmennin 52-46!

Það fór eins og marga grunaði að ungliðahreyfingin yrði ellismellunum yfirsterkari á Fullveldismótinu í gær. Breytti það engu þótt þeir ungu væru sumir mjög farnir að nálgast miðjan aldur og orðnir mjög svo þroskaðir tilsýndar.

dau_ablom.jpgAlls mættu 14 skákmenn til að fagna fullveldinu og var skipt í tvö lið eftir aldri.  Þessir lentu yngra megin við strikið, (raðað eftir aldri): Óliver Ísak Ólason, Jón Kristinn Þorgeirsson, Símon Þórhallsson, Andri Freyr Björgvinsson, Tómas Veigar Sigurðarson, Sigurður Arnarson, Smári Ólafsson. Þeir sem lentu hinu megin voru þessir, (enn raðað eftir aldri, öfug röð): Hjörleifur Halldórsson, Haki Jóhannesson, Sveinbjörn Sigurðsson, Sigurður Eiríksson, Áskell Örn Kárason, Haraldur Haraldsson, Stefán Júlíusson.

Tefld var bændaglíma, tvöföld umferð, umhugsunartími 7 mínútur - alls 98 skákir! Ungliðarnir tóku strax forystuna og létu hana aldrei af hendi, þótt munurinn væri aldrei mikill. Eftir fyrri hlutann höfðu þeir ungu forystuna 27,5-21,5 en þá fóru þeir gömulu að sækja á og virtust um tíma líklegir til að taka þetta á lokasprettinum. Tvö stórtöp, 2-5 í 12. og 13. umferð réðu þó baggamuninn og því fór sem fór. Síðari hlutanum lauk með jafntefli 24,5-24,5 og var heildarniðurstaðan því 52-46 þeim ungu í vil. Að mati sérfræðinga er þetta þó innan skekkjumarka.

Flesta vinninga ungliða fékk Jón Kristinn, eða 11,5 í 14 skákum, Tómas Veigar fékk 10,5 og þeir Andri og Sigurður A 8. Af ellismellum fékk Áskell 12 vinninga, Sigurður E 10,5 og Haraldur 7.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband