Landsmótiđ í skólaskák:
Sunnudagur, 15. maí 2011
Báđir titlarnir til Akureyrar!
Á landsmótinu í skólaskák sem lauk nú um hádegisbil í Síđuskóla bar Mikael Jóhann Karlsson sigur úr býtum í eldri flokki, en Jón Kristinn Ţorgeirsson í ţeim yngri. Báđir voru vel ađ sigrinum komnir. Mikael tók snemma forystu í mótinu og í gćrkveldi ţegar 9 af 11 umferđum höfđu veriđ tefldar hafđi hann 1,5 vinnings forskot á nćsta mann. Báđum skákum hans í dag lauk svo međ jafntefli. Mikael fór taplaus í gegnum mótiđ og var í ákveđnum sérflokki. Ţeir Hjörtur Snćr Jónsson og Hersteinn Heiđarsson tefldu einnig í eldri flokki en náđu ekki ađ blanda sér í toppbaráttuna.
Í yngri flokki var keppnin afar jöfn og spennandi. Eftir tap Jóns Kristins í 2. umferđ dróst hann um tíma aftur úr efstu mönnum, en náđi forystunni međ glćsilegum sigri á Oliver Johannessyni í 9. umferđ og náđi ţá hálfs vinnings forskoti á Oliver. Hann vann svo báđar síđustu skákir sínar örugglega og ţar međ var titillinn í höfn. Ađalsteinn Leifsson náđi einnig prýđilegum árangri á sínu fyrsta landsmóti og varđ í miđjum hóđi keppenda. Öll úrslit má sjá á Chess-results.
Chess-results: eldri flokkur
Chess-results: yngri flokkur
Myndir
Viđ skákfélagsmenn erum vitaskuld mjög stoltir yfir ţessum glćsilega árangri og óskum ţeim félögum hjartanlega til hamingju međ sigurinn.
Skákfélagiđ tók ađ sét mótshaldiđ međ stuttum fyrirvara og tókst ţađ frábćrlega međ sameiginlegu átaki stjórnarmanna og foreldra. Ađkomumenn gistu í Síđuskóla og ţar var einnig telft utan fyrstu 4 umferđirnar sem fóru fram í skákheimilinu. Félagiđ vill ţakka öllum ţeim sem lögđu hönd á plóg viđ undirbúning og framkvćmd mótsins, ţ.m.t. Síđuskóla sem léđi okkur ađstöđu og fyrirtćkjunum Subway, Jóni Spretti, Mjólkursamsölunni, Norđlenska, Vífilfelli og Kristjánsbakaríi, sem gerđu okkur kleift ađ halda kostnađi viđ mótshald og uppihald keppenda í lágmarki.
Lokastađan í eldri flokki
Rk. | Name | RtgN | Club/City | Pts. | |
1 | 1835 | Brekkuskóli, Norđurland Eystra | 9.5 | ||
2 | 1659 | Rimaskóli, Reykjavík | 8.5 | ||
3 | 1618 | Hólabrekkuskóli, Reykjavík | 7.0 | ||
4 | 1824 | Grunnskóli Bláskógabyggđar, Suđurla | 7.0 | ||
5 | 1594 | Salaskóli, Reykjanes | 7.0 | ||
6 | 1802 | Salaskóli, Reykjanes | 6.5 | ||
7 | 1628 | Rimaskóli, Reykjavík | 6.0 | ||
8 | 1497 | Rimaskóli, Reykjavík | 5.0 | ||
9 | 1369 | Rimaskóli, Reykjavík | 4.5 | ||
10 | 1390 | Glerárskóli, Norđurland Eystra | 3.0 | ||
11 | 1260 | Glerárskóli, Norđurland Eystra | 1.5 | ||
12 | 0 | Grunnskóli Egilstađa, Austurland | 0.5 |
Lokastađan í yngri flokki
Rk. | Name | RtgN | Club/City | Pts. | |
1 | 1632 | Lundaskóli, Norđurland Eystra | 9.5 | ||
2 | 1559 | Rimaskóli, Reykjavík | 9.0 | ||
3 | 1304 | Rimaskóli, Reykjavík | 8.5 | ||
4 | 1328 | Hörđuvallaskóli, Reykjanes | 7.5 | ||
5 | 1389 | Melaskóli, Reykjavík | 7.0 | ||
6 | 1218 | Grandaskóli, Reykjavík | 6.5 | ||
7 | 1265 | Melaskóli, Reykjavík | 5.5 | ||
8 | 0 | Brekkuskóli, Norđurland Eystra | 5.0 | ||
9 | 1214 | Hvaleyrarskóli, Reykjanes | 3.5 | ||
10 | 0 | Egilsstađaskóli, Austurland | 3.0 | ||
11 | 0 | Valsárskóli, Norđurland Eystra | 1.0 | ||
12 | 0 | Flúđaskóli, Suđurland | 0.0 |
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslandsmeistarar, Skólaskákmót | Breytt s.d. kl. 23:07 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.