Tómas Veigar Bikarmeistari Skákfélags Akureyrar 2011
Föstudagur, 22. apríl 2011
Bikarmóti Skákfélags Akureyrar lauk í dag. Mótið fer þannig fram að nöfn þátttakenda eru sett í pott, svo er dregið í hverri umferð hverjir mætast (sá sem er dreginn á undan er með hvítt). Vel getur komið fyrir að sömu menn mætist aftur og aftur og jafnvel með sömu liti, fer allt eftir útdrættinum. Menn detta svo út eftir að hafa tapað 3 vinningum.
Mótið var á köflum mjög spennandi enda voru úrslit oft ekki í samræmi við stöðurnar á borðinu. Tíu skákmenn hófu keppni í gær, en heltust úr lestinni einn af öðrum þar til aðeins einn stóð eftir.
Tómas Veigar sigraði nokkuð örugglega, tapaði aðeins einni skák gegn hinum sívaxandi skákmanni Jóni Kristni Þorgeirssyni, en sá endaði í þriðja sæti með 5,5 vinninga. Feðgaslagur var í lokaumferðinni, en þá mættust feðgarnir Sigurður Eiríksson og Tómas Veigar. Sigurður var þegar þar var komið við sögu með -2,5 vinninga og varð því að vinna þar sem jafntefli hefði þýtt -3 vinninga sem jafngildir falli úr keppni. Skákin fór þannig að Tómas hafði betur og stóð þar með einn eftir með -1,5 vinning niður (8,5 upp) en Sigurður endaði í 2. sæti. Hjörleifur Halldórsson og Andri Freyr Björgvinsson voru jafnir í 4. -5. sæti með 4,5 vinninga.
1. umferð | Úrslit | 2. umferð | Úrslit | |||||
1 | Jón Baldvin - Tómas | 0 | 1 | 1 | Smári - Sveinbjörn | 0 | 1 | |
2 | Hjörleifur - Friðrik | 1 | 0 | 2 | Hjörleifur - Jón Mag | 0 | 1 | |
3 | Jón Mag - Jón Kr | 0 | 1 | 3 | Jón Kristinn - Tómas | 1 | 0 | |
4 | Sveinbjörn - Sigurður E | 0 | 1 | 4 | Sigurður E - Friðrik | 1 | 0 | |
5 | Smári - Andri Freyr | 1 | 0 | 5 | Jón Baldvin - Andri | 0 | 1 | |
6 | 6 | |||||||
7 | 7 | |||||||
8 | 8 | |||||||
9 | 9 | |||||||
10 | 10 | |||||||
3. umferð | Úrslit | 4. umferð | Úrslit | |||||
1 | Friðrik - Sigurður E | 0 | 1 | 1 | Sveinbjörn - Sigurður E | 0 | 1 | |
2 | Jón Mag - Hjörleifur | 0 | 1 | 2 | Andri - Jón Mag | 0,5 | 0,5 | |
3 | Andri - Jón Baldvin | 1 | 0 | 3 | Tómas - Smári | 1 | 0 | |
4 | Sveinbjörn - Smári | 0 | 1 | 4 | Hjörleifur - Jón Kr | 0,5 | 0,5 | |
5 | Jón Kristin - Tómas | 0 | 1 | 5 | ||||
5. umferð | Úrslit | 6. umferð | Úrslit | |||||
1 | Jón Kr - Andri | 0,5 | 0,5 | 1 | Tómas - Smári | 1 | 0 | |
2 | Hjörleifur - Sigurður E | 1 | 0 | 2 | Andri Freyr - Hjörleifur | 0,5 | 0,5 | |
3 | Tómas - Jón Mag | 1 | 0 | 3 | Jón Kr - Sigurður E | 1 | 0 | |
7. umferð | Úrslit | 8. umferð | Úrslit | |||||
1 | Sigurður E - Jón Kr | 0,5 | 0,5 | 1 | Andri Freyr - Sigurður E | 0 | 1 | |
2 | Tómas - Hjörleifur | 0,5 | 0,5 | 2 | Hjörleifur - Tómas | 0 | 1 | |
3 | Andri Freyr sat hjá | 3 | Jón Kristinn sat hjá | |||||
9. umferð | Úrslit | 10. umferð | Úrslit | |||||
1 | Jón Kr - Sigurður E | 0 | 1 | 1 | Tómas - Sigurður E | 1 | 0 | |
2 | Tómas Veigar sat hjá | 2 |
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Bikarmót Skákfélags Akureyrar | Breytt s.d. kl. 20:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.