Skákþing Akureyrar - Enn jafnt hjá Sigurði og Smára
Fimmtudagur, 24. febrúar 2011

Þeir Sigurður Arnarson og Smári Ólafsson urðu efstir og jafnir á Skákþingi Akureyrar, sem lauk sl. sunnudag, 20. febrúar. Þeir heyja því einvígi umtitilinn "Skákmeistari Akureyrar" og eru nú enn jafnir eftir tveggja skáka einvígi. Í dag tefla þeir því til úrslita um þennan titil, sem teflt hefur verið um árlega í 80 ár.
Fyrst munu þeir tefla tvær 15. mínútna skákir og ef enn verður jafnt ráðast úrslitin í einni bráðabanaskák. Talfið hefst kl. 17.00 í skákheimilinu íÍþróttahöllinni (gengið inn að vestan). Gera má ráð fyrir að seinni 15. mín.skákin hefjast um kl. 17.30 og bráðabaninn, ef af honum verður, rétt upp úr kl.18.
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Skákþing Akureyrar | Breytt s.d. kl. 14:13 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.