Áskell Örn nýr formaður

Aðalfundur Skákfélags Akureyrar var haldinn í gærkvöldi. Þar gerðust þau stórtíðindi að Gylfi Þórhallsson, sem gengt hefur stöðu formanns undanfarin ár og alls í 14 ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Í stað hans var Áskell Örn Kárason kjörinn formaður og aðrir í stjórn eru Árný Hersteinsdóttir, Hjörleifur Halldórsson, María Stefánsdóttir, Smári Ólafsson og Sigurður Arnarson (til vara).


Á fundinum kom m.a. fram að unglingastarf félagsins stendur með allnokkrum blóma, en halli á rekstri síðasta starfsárs óviðunandi og þarfnast verulegra úrbóta.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband