Íslandsmót öldunga

Athygli norðlenskra öldunga er vakin á þessu móti. Ef þátttaka fæst hér fyrir norðan er möguleiki á að tefla fyrstu tvær umferðirnar hér, aðra eða báðar.  Þeir sem hyggja á þátttöku verða þó að vera tilbúnir til að tefla í Reykjavík dagana 19-22. september. Við hvetjum (h)eldri skákmenn til þátttöku í þessu móti og að skrá sig hið fysta.

Upplýsingar um mótið:

Íslandsmót öldunga (65+) verður haldið í fyrsta skipti sem kappskákmót 5.-22. september nk. Mótið verður haldið í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.

Tefldar verða sex umferðir á mótinu. Reynt er að koma til móts við þarfir landsbyggðarmanna með fyrirkomulagi mótsins. Tvær hálf vinnings yfirsetur í umferðum 1-4 eru leyfðar.

Fyrstu þrjár umferðirnar eru haldnar með viku millibili á fimmtudögum (5.-19. september). Mótinu lýkur svo með helgarlotu (20.-22. september).

Möguleiki er að Norðanmenn geti teflt 1. og jafnvel einnig 2. umferð fyrir norðan við hvorn annan þ.e. ef þátttaka þeirra verður nægjanleg góð.

Dagskrá:

1. umferð Fimmtudagurinn 5. september 16:00
2. umferð Fimmtudagurinn 12. september 16:00
3. umferð Fimmtudagurinn 19. september 16:00
4. umferð Föstudagurinn 20. september 16:00
5. umferð Laugardagurinn 21. september 13:00
6. umferð Sunnudagurinn 22. september 13:00


Umhugsunartími:  90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik. 

Mótið er opið fyrir alla 65 ára og eldri. Fæddir 1954 eða fyrr. 

Þátttökugjald: 10.000 kr. á keppenda

Verðlaun:

1. 120.000 kr. ferðastyrkur á alþjóðlegt öldungamót
2. 50.000 kr.
3.   30.000 kr.

Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfinu. 

Veit verða sérverðlaun (verðlaunagripir) fyrir hver fimm ár (70+, 75+ o.s. frv.).


Startmótið sunnudaginn 8. september

Upphafsmót nýrrar skáktíðar hér á Akureyri, Startmótið, verður haldið sunnudaginn 8. september og hefst kl. 13. Tefldar verða hraðskákir að venju. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta, ekki síst ungir skákmenn. 

Mótaáætlun verður birt á næstunni, en þegar hefur verið ákveðið að haustmót félagsins hefjist þann 22. september. Dagskrá mótsins verður birt á næstu dögum.


Bloggfærslur 25. ágúst 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband