Brekkuskóli bestur á landsbyggðinni!
Mánudagur, 24. apríl 2023
Nú um helgina var Íslandsmót barnaskólasveita (4-7. bekk) og grunnskólasveita (8-10. bekk) háð í Rimaskóla í Reykjavík.
Í yngri flokknum var sveitin skipuð piltum úr 6. bekk. Þeir höfðuðu í 10. sæti af 31 eftir að hafa verið í námunda við toppinn undir lok mótsins, en töpuðu í lokaumferðinni fyrir Vatnsendaskóla sem hafnaði í 2. sæti. Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestan árangur sveitar af landsbyggðinni og var Brekkuskólasveitin í nokkrum sérflokki meðal þeirra 10 sveita sem komu frá skólum utan höfðuborgarsvæðisins og vann þessi verðlaun.
Sveitina skipuðu þeir Sigurður Hólmgrímsson, Egill Ásberg Magnason, Helgi Kort Gíslason, Heiðar Gauti Leósson og Jesper Tói Tómasson. Sveitin fékk 18 vinninga í 32 skákum og náði Jesper Tói flestum vinningum í hús, eða 5. Sjá allt á chess-results.
Í eldri flokknum var sveitin skipuð fjórum piltum úr 8. bekk og hafnaði sveitin í 10. sæti af 20; fékk 13,5 vinninga af 28. Sveitina skipuðu þeir Tobias Þórarinn Matharel, Gunnar Logi Guðrúnarson, Goði Svarfdal Héðinsson og Hinrik Hjörleifsson. Þeir Gunnar Logi og Goði fengu báðir fjóra vinninga úr sjö skákum.
Einnig hér fékk sveitin verðlaun fyrir bestan árangur landsbyggðarsveita, nú eftir harða baráttu við Flúðaskóla. Sveitirnar mættust í lokaumferðinni og gerðu 2-2 jafntefli sín á milli, eftir mað norðanpiltar höfðu misst af nokkrum tækifærum til að vinna viðureignina 4-0. Þessi úrslit dugðu þeim þó til að fá bikarinn eftirsótta. Hér má sjá allt á chess-results.
Við þetta má bæta að fyrr í vetur tók sveit stúlkna úr 5. bekk í þátt í Íslandsmóti stúlknasveita og náði þar tilskildum árangri; urðu efstar sveita utan af landi! Sveitina skipuðu þær Inga Karen Björgvinsdóttir, Yrsa Sif Hinriksdóttir, Unnur Erna Atladóttir, Hrafnheiður Guðmundsdóttir.
Það má því með sanni segja að Brekkuskóli hafi á að skipa öflugum skáksveitum.
Hér fylgja myndir af skáksveitunum; fyrst stúlkurnar, svo 6. bekkingar með glaðbeittum liðstjóra og loks unglingasveitin.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:46 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.