Haustmótið, yngri flokkar
Mánudagur, 5. desember 2016
Á laugardaginn lauk Haustmóti Skákfélagsins í yngri flokkum. Keppt var í einum lagi um fjóra titla.
Í keppninni um skákmeistara SA í yngri flokkum samanlagt var hörð keppni milli þriggja drengja. Ágúst (fæddur 2005), Gabríel (fæddur 2004) og Fannar (fæddur 2005) börðust um sigurinn. Allir aðrir keppendur urðu að lúta í lægra haldi fyrir þeim í seinni hlutanum og réðust úrslit því í innbyrðis viðureignum þeirra. Ágúst gerði jafntefli við hina tvo en Fannar lagði Gabríel eftir afleik þess síðarnefnda. Fannar stóð sig því best keppenda. Í fyrri hlutanum voru Fannar og Gabríel efstir og dugði það forskot til að Gabríel hélt 2. sæti í heildarkeppninni fyrir Ágústi.
- Skákmeistari SA í flokki 14-15 ára fædd 2002 og 2001 varð Tumi Snær með 2 vinninga úr fyrri umferð.
- Skákmeistari SA í flokki 11-13 ára fædd 2005, 2004 og 2003 varð Fannar Breki með samtals 12,5 vinninga.
Í 2. sæti varð Gabríel Freyr með 11,5 vinninga og þriðji varð Ágúst með 10 vinninga. - Í yngsta flokknum, barnaflokki, þar sem keppendur eru fæddir árið 2006 og síðar var mikil spenna. Svo fór að lokum að þrír keppendur urðu efstir og jafnir með 5 vinninga og teljast þeir allir sigurvegarar.
- Skákmeistarar SA í barnaflokki fædd 2006 og síðar eru: Jóel, Ingólfur og Brynja.
Heildarúrslit í seinni umferð má sjá hér að neðan. Ártal í sviga er fæðingarár.
- Fannar Breki(2005)8,5 vinningar
- Ágúst (2005)8 vinningar
- Gabríel (2004)7,5 vinningar
- -6. sæti Jóel (2007), Ingólfur (2007) og Brynja (2006)5 vinningar
7.-8. sæti Máni (2010) og Ívan (2010) 2 vinningar
- sæti Alexía (2011) 1 vinningur
- sæti Skotta(1342) 0 vinningar
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.