Íslandsmótiđ í atskák - 8 keppendur frá SA.
Mánudagur, 28. desember 2015
Í gćr fór fram Atskákmót Icelandair 2015 - Íslandsmótiđ í atskák. Ţađ er félagi okkar, Óskar Long, sem bar hitann og ţungann af ţessu móti og á hann heiđur skilinn fyrir ţađ.
Stórmeistarinn Helgi Ólafsson varđ Íslandsmeistari. Hann fór taplaus í gegnum mótiđ og hlaut ađ lokum 7,5 vinninga í 9 skákum. Í öđru sćti varđ stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson međ jafn marga vinninga.
Skákfélagiđ óskar Helga til hamingju međ titilinn og Hjörvari međ annađ sćtiđ.
Alls tóku 88 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af voru 8 skákmenn frá Skákfélagi Akureyrar. Má segja ađ ţeir hafi allir stađiđ undir vćntingum og vel ţađ. Sú niđurstađa er fengin međ ţví ađ miđa endanlegt sćti viđ styrkleikaröđina fyrir mót.
Efstur okkar manna varđ Áskell Örn Kárason, formađur vor. Hann hlaut 1,5 vinningum minna en efstu menn eđa 6 vinninga samtals. Ţađ dugđi honum í 12. sćti en hann var í 17. sćti styrkleikarađarinnar.
Halldór Brynjar Halldórsson hlaut jafnmarga vinninga en endađi í 15. sćti (16. sćti styrkleikarađarinnar). Í 9 umferđum tefldi Halldór ţrisvar viđ félaga sína í SA í mótinu. Hann vann tvo en tapađi fyrir lćrlingi sínum frá Heimsmeistaramóti ungmenna, Símoni Ţórhallssyni.
Sćti neđar, međ 5,5 vinninga líkt og tveir ađrir SA-menn, varđ Björn Ívar Karlsson. Ţađ má segja ađ hann og Halldór hafi skipt um sćti ţví Björn var í 15. sćti styrkleikaröđuninnar. Björn Ívar fékk erfiđa andstćđinga. Hann mćtti ţremur stórmeisturum og ţremur alţjóđlegum meisturum og var lengst af í toppbaráttunni en tap í síđustu umferđ sendi hann niđur í sćti sem er á pari viđ styrkleikaröđunina.
Nćstur okkar manna varđ Stefán Bergsson. Hann endađi međ jafnmarga vinninga og Björn Ívar og lenti í 21. sćti sem er ţađ sama og styrkleikaröđin sagđi til um.
Ţriđji norđanmađurinn međ 5.5 vinninga varđ Ţór Valtýsson. Hann endađi í 27. sćti (28. sćti styrkleikarađarinnar). Mesta afrek Ţórs í mótinu verđur ađ teljast sigur hans á Fidemeistaranum Sigurđi Dađa (2280) í 4. umferđ.
6. Skákfélagsmađurinn í mótinu varđ ungstirniđ Símon Ţórhallsson. Hann hlaut 5 vinninga og endađi í 29. sćti. Samkv. styrkleikalistanum fyrir mót var hann í sćti 43. Samt kemur árangur hans ekki á óvart ţví ţeir sem til ţekkja vita ađ hann á mikiđ inni. Í fyrra náđi Símon ţeim óvćnta árangri ađ lenda í 4. sćti mótsins.
Nćstur okkar manna varđ Haraldur Haraldsson. Hann hlaut 4,5 vinninga og endađi í 47. sćti. Fyrir mót var honum rađađ í sćti 31 og varđ hann ađeins hálfum vinningi frá ţví sćti.
8. félagsmađur okkar varđ Óskar Long Einarsson. Hann hlaut 4 vinninga og endađi í 53. sćti en var í ţví 66. á styrkleikalistanum. Óskar lagđi međal annars Pál Agnar Ţórarinsson sem er međ 2181 skákstig eđa rúmum 500 skákstigum meira en Óskar.
Heildarúrslitin má sjá hér: http://chess-results.com/tnr201665.aspx?lan=1&art=1&rd=9&wi=821
Flokkur: Spil og leikir | Breytt 31.12.2015 kl. 12:02 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.