Hraðskákmót Höfuðstaðar Norðurlands!
Laugardagur, 22. febrúar 2014
Hið árlega Hraðskákmót Akureyrar verður háð á morgun, sunnudag og hefst kl. 13. Teflt verður um hinn eftirsóknarverða titil Hraðskákmeistari Akureyrar.Í þeim slag eru margir kallaðir, en bara einn útvalinn. Spurningin er hvort núverandi meistara, Rúnari Sigurpálssyni, takist að verja titil sinn, hvort gamlir og gráir meistarar muni taka fram skóna og leggja hann að velli, eða hvort nýstirnin taki mótið með trompi og máti þá sem rosknari eru. Allt af þessu getur gerst og margt fleira.
Eitt er víst = það verður grimmilega gaman!
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og kaffið endist.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.