Tap í Fćreyjum
Ţriđjudagur, 20. ágúst 2013
Landskeppnin viđ Fćreyinga var háđ um síđustu helgi og var teflt í Klaksvík í ţetta sinn. Mun ţetta vera í 20. sinn sem landskeppnin er háđ. Frá árinu 1978 hafa skákmenn af Norđur- og Austurlandi ađ mestu skipađ íslensku sveitina, og var svo einnig í ţetta sinn. Af 10 liđsmönnum komu sex frá Skákfélagi Akureyrar, tveir frá Gođanum-Mátum og einn frá Skáksambandi Austurlands. Flokkinn fyllti svo Gunnar Björnsson, Hellismađur, sem var staddur í Fćreyjum á ţessum tíma. Íslenska sveitin var allvel skipuđ og áttu menn von á hörkukeppni ţótt Fćreyingar vćri heldur hćrri ađ međalstigum. Okkar menn guldu hinsvegar afhrođ í fyrri umferđinni og ţótt ţeir réttu úr kútnum í ţeirri síđari vađ tap ekki umflúiđ. Einn okkar manna, Halldór Brynjar Halldórsson, lýsti keppninni svo á Skákhorninu:
Um helgina fór fram landskeppni Íslendinga og Fćreyinga í Klaksvik í Fćreyjum. Eins og hefđ er fyrir var liđ Íslendinga einkum skipađ skákmönnum međ tengsl viđ Norđur- og Austurland. Ţó mćtti forseti vor, Gunnar Björnsson, til leiks, en mann vantađi međ skömmum fyrirvara og hann hafđi ţegar ákveđiđ fund međ skáksambandi Fćreyja í haust. Ţađ voru ţví hćg heimatökin, og tvćr flugur slegnar í einu höggi.
Hluti liđsins fór međ Norrćnu en rúmur helmingur međ flugi. Fyrri umferđin fór síđan fram sl. föstudagskvöld, tćpri klukkustund eftir ađ sá hluti sem kom međ flugi kom til Klaksvikur.
Fyrir lá ađ liđ Fćreyinga yrđi mun sterkara í fyrri umferđinni en í ţeirri síđari, vegna ýmissa ástćđna. Ţví reiđ á ađ haldiđ yrđi sem mest í horfinu á föstudeginum. Ţví miđur fór ţví sem nćst allt úrskeiđis sem hugsast gat. Sem dćmi léku bćđi undirritađur og Viđar Jónsson niđur unninni stöđu. Stađreyndin er ţó einfaldlega sú ađ Fćreyingar tefldu mun betur heilt yfir og áttu sigurinn ţar fyllilega skilinn. Hann var ţó helst til stór, jafnvel miđađ viđ taflmennskuna. 6,5-3,5 hefđu e.t.v veriđ sanngjarnari úrslit.
Síđari umferđin fór fram í morgun og höfđu ţá Íslendingar betur, 6-4. Sá sigur var síst of stór, og hefđi međ smá heppni getađ orđiđ stćrri. Stađreyndin er ţó sú ađ sigur Fćreyingar í viđureigninni var á ţessum tíma aldrei í hćttu.
Fćreyingar eru miklir höfđingjar heim ađ sćkja og var öll gestrisni til mikillar fyrirmyndar. Hins vegar má segja ađ viđ höfum endurgoldiđ ţá gestrisni alltof dýru gjaldi. Ţađ er ljóst ađ liđsmenn eru afar ósáttir međ niđurstöđuna og geta ekki annađ en litiđ í eigin barm, e.t.v. ef frá er talinn Haraldur Haraldsson sem fékk 1,5 vinning. Á ţessum úrslitum bćđi berum viđ og tökum fulla ábyrgđ.
Úrslitin í heild sinni voru sem hér segir:
Fyrri umferđ, 15. ágúst:
IM Helgi Dam Ziska 2474 - FM Einar Hjalti Jensson 2305 1 - 0
Rögvi Egilstoft Nielsen 2243 - Hlíđar Ţór Hreinsson 2238 1 - 0
FM Carl Eli Samuelsen 2194 - Rúnar Sigurpálsson 2230 ˝ - ˝
Högni Egilstoft Nielsen 2102 - Halldór B. Halldórsson 2228 1 - 0
Torkil Nielsen 2113 - Stefán Bergsson 2157 1 - 0
Torbjörn Thomsen 2143 - Gunnar Björnsson 2102 ˝ - ˝
Herluf Hansen 2028 - Haraldur Haraldsson (2005) ˝ - ˝
Terji Petersen 2037 - Sigurđur Eiríksson 1946 1 - 0
Martin Brekká 2028 - Viđar Jónsson 1997 1 - 0
Súni Jacobsen 1865 - Óskar Long Einarsson 1605 1 0
Síđari umferđ, 17. ágúst:
FM Einar Hjalti Jensson 2305 - IM John Rřdgaard 2366 ˝ - ˝
Hlíđar Ţór Hreinsson 2238 - FM Carl Eli Samuelsen 2194 1 - 0
Rúnar Sigurpálsson 2230 - Torkil Nielsen 2113 ˝ - ˝
Halldór B. Halldórsson 2228 - Torbjörn Thomsen 2143 ˝ - ˝
Stefán Bergsson 2157 - Finnbjřrn Vang 2051 1 - 0
Gunnar Björnsson 2102 - Herluf Hansen 2028 ˝ - ˝
Haraldur Haraldsson (2005) - Terji Petersen 2037 1 - 0
Sigurđur Eiríksson 1946 - Tummas M.Solsker, 1927 0 - 1
Viđar Jónsson 1997 - Súni Jacobsen 1865 1 - 0
Óskar Long Einarsson 1605 - Jóannes Guttesen 0 1
Eins og áđur voru Fćreyingar höfđingjar heim ađ sćkja og róma okkar menn móttökurnar, eins og sjá má hér ađ framan. Keppnin vakti mikla athygli ţar ytra og var t.d. ítarleg frétt um hana í kvöldfréttum fćreyska sjónvarpsins í gćrkvöldi, mánudag. Ţar var m.a. viđtal viđ liđsstjórann Stefán Bergsson, sem svarađi spurningum fréttamanns skorinort á norrćnni tungu. Fréttina má sjá hér (byrjar u.ţ.b. 17:30). Ţar má m.a. sjá ađ John Rřdgaard tefldi sína 200 skák fyrir Fćreyjar gegn Einari Hjalta. Var hann heiđrađur fyrir ţann áfanga af skáksambandinu, svo og Helgi Ziska, sem nýlega náđi áfanga ađ stórmeistaratitli, fyrstur Fćreyinga.
Frekari umfjöllun má sjá hér:
Heimasíđa fćreyska sjónvarpsins
Skak.is (I)
Skak.is (II)
Nćsta landskeppni er fyrirhuguđ á Íslandi eftir tvö ár.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:43 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.