Símon skákmeistari Lundarskóla!
Mánudagur, 27. janúar 2014
Í Lundarskóla stunda nám tveir af öflugustu skákunglingum landsins. Ţegar efnt var til Lundarskólamóts í skák sl. föstudag kom í ljós ađ enginn úr efstu bekkjum skólans treysti sér til ađ etja kappi viđ ţá bekkjarbrćđur, Símon Ţórhallsson og Jón Kristin Ţorgeirsson. Ţví var slegiđ upp móti í yngri flokki (1-7. bekk) en ţeir fóstbrćđur tefldu einvígi sín á milli um skólameistaratitilinn sen Jón bar reyndar á sínum herđum frá ţví í fyrra. Alls tefldu ţeir fimm skákir. Símon byrjađi mjög snarplega og vann tvćr fystu skákirnar. Ţá vaknađi Jokko til lífsins og vann tvćr nćstu. En seiglan kom hinum fyrrnefnda til góđa í lokaskákinni og var hann krýndur skólameistari eftir 3-2 sigur í einvíginu.
Í yngri flokki mćttu 12 keppendur til leiks. Ţví miđur glatađist mótstaflan, en öruggur sigurvegari var Gunnar Ađalgeir Arason úr 7. bekk međ fullt hús vinninga, 5 talsins. Á hćla honum kom fimmtubekkingurinn Roman Darri Stevenson Bos međ fjóra vinninga. Hálfum vinningi minna fengu ţeir Björn Torfi Tryggvason úr 7. bekk og Gunnar Breki Gíslason úr ţeim fimmta. Ađrir fengu ögn minna en stóđu sig međ prýđi. Ţađ er mál manna ađ Lundskćlingar mćti međ öflugar sveitir á Íslandsmót grunnskólasveita síđar í vetur!
Spil og leikir | Breytt 29.1.2014 kl. 13:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Skákdagurinn á morgun!
Laugardagur, 25. janúar 2014
- og fleira markvert.
Á morgun, 26. janúar er Skákdagurinn haldinn hátíđlegur eins og undanfarin ár. Opiđ hús verđur hjá Skákfélaginu frá kl. 13. Ţá verđur efnt til skákkeppni milli tveggja grunnskóla á Akureyri, Brekkuskóla og Lundarskóla og er stefnt ađ ţví ađ tefla á 10 borđum. Samhliđa ţessu verđur haldiđ barnamót ef nćg ţátttaka fćst.
Eldri og reyndari kappar eru einnig velkomnir, bćđi til ađ klappa fyrir krökkunum og taka nokkrar bröndóttar, ef svo ber undir.
Fimmta umferđ Skákţings Akureyrar fer svo fram nk. miđvikudagskvöld 29. janúar og hefst kl. 18.
Fimmtudagskvöldiđ 30. janúar verđur svo ţriđja lota TM-mótarađarinnar háđ. Hlé hefur veriđ á hrađskákmótum vegna Skákţingsins og er nú kjöriđ tćkifćri fyrir hrađhenta skákmenn ađ ţjóna lund sinni og eđli í dásamlegum klukkubarningi. Mótiđ hefst kl. 20.
Sigurđur einn efstur á Skákţinginu
Fimmtudagur, 23. janúar 2014
Í kvöld fór fram 4. umferđ Skákţings Akureyrar. Allar skákirnar voru frá 32 til 38 leikir. Fyrstir til ađ ljúka sinni skák voru Símon Ţórhallsson og Tómas Veigar. Hafđi Símon hvítt og upp kom kóngindversk vörn. Tómas fór í vafasamt drottningaflan og át eitrađ peđ í 17. leik. Viđ ţađ lokađist drottningin inni og varđ hann ađ gefa hana fyrir hrók. Úrvinnslan var fumlaus hjá Símoni og gafst Tómas upp í 32. leik.
Í skák Andra og Sigurđar var ţung undiralda. Andri lék ónákvćmt í seinni hluta miđtaflsins og ţađ nýtti Sigurđur sér vel. Peđastađa Andra var viđkvćm og ţau tóku ađ falla hvert á fćtur öđru uns Andri gafst upp í 38. leik.
Hjörleifur hafđi hvítt gegn Jóni og tefldu ţeir lokađa afbrigđiđ af Sikileyjavörn. Hjörleifur tefldi nokkuđ passíft og nýtti Jón sér ţađ vel. Hann skipti upp á virku mönnum hvíts og bćtti stöđu sína jafnt og ţétt. Ađ lokum reiddi hann hátt til höggs og hvíta stađan hrundi. Hvítur gafst upp í 36. leik. Mjög vel teflt hjá Jóni.
Í skák Rúnars og Haraldar kom einnig upp lokađa afbrigđi Sikileyjavarnar eđa kóngindversk árás. Svartur náđi frumkvćđinu og tefldi stíft til vinnings en Rúnar stóđst atlöguna vel og ţeir sćttust á skiptan hlut í 37. leik.
Skák Loga og Jakobs var í jafnvćgi allan tímann. Ţeir sömdu jafntefli í 37. leik ţegar sýnt ţótti ađ hvorugur kćmist neitt áfram.
Eftir úrslit dagsins leiđir Sigurđur Eiríksson mótiđ međ fullt hús stiga og hálfan vinning í forskot á Jón Kristinn og Harald.
Spil og leikir | Breytt 24.1.2014 kl. 07:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagur eldri mannanna
Sunnudagur, 19. janúar 2014
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Skákţing Akureyrar - Landsbankamótiđ:
Föstudagur, 17. janúar 2014
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
76. Skákţing Akureyrar hafiđ!
Sunnudagur, 12. janúar 2014
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
TM-mótaröđin hafin
Föstudagur, 10. janúar 2014
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
TM-mótaröđin hefst i kvöld!
Fimmtudagur, 9. janúar 2014
76. Skákţing Akureyrar ađ hefjast
Mánudagur, 6. janúar 2014
Mótaáćtlun í janúar
Mánudagur, 6. janúar 2014