Minningarmót um Sveinbjörn Óskar Sigurðsson

SveinbjörnFélagi Sveinbjörn var borinn til grafar í dag, blessuð sé minning hans. Spurning hver tekur nú við hlutverki hans sem hin gagnrýna rödd í akureyrskum skákheimi.  Við höldum minningu hans á lofti og efnum til minningarmóts um hvítasunnuhelgina. Það verður svona:

Fyrirkomulag: 8 umferðir eftir svissnesku kerfi, umhugsunartími á skák 45 mínútur +15 sekúndur fyrir hvern leik.  

Reiknað til alþjóðlegra atskákstiga

Dagskrá: 

1. umferð, föstudag 2. júní kl. 18.00

2. umferð, föstudag 2. júní kl. 20:30

3. umferð, laugardag 3. júní kl. 11:00

4. umferð, laugardag 3. júní kl. 13:30

5. umferð, laugardag 3. júní kl. 18:00

6. umferð, sunnudag 4. júní kl. 11:00

7. umferð, sunnudag 4. júní kl. 13:30

8. umferð, sunnudag 4. júní kl. 18:00

Þátttökugjald: 3000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 1000 fyrir þá yngri.

Verðlaun (að lágmarki):

1. verðlaun kr. 40.000

2. verðlaun kr. 30.000

3. verðlaun kr. 20.000

stigaverðlaun 1800-1999 stig (og stigalausir) 15.000

stigaverðlaun 1799 stig eða minna 15.000

Hver keppandi getur aðeins unnið til einnra verðlauna. Miðað verður við 1)alþjóðleg atskákstig, ef þau verða ekki fyrir hendi verður miðað við 2)alþjóðleg kappskákstig og að lokum við 3)íslensk kappskákstig ef hin stigin eru ekki fyrir hendi. Aðeins þeir sem ekki finnast á eftirtöldum stigalistum teljast stigalausir. 

Tekið verður við skráningum í Facebook (SA eða skákmanna) í einkaskilaboðum til Áskels formanns SA eða í tölvupósti á askell@simnet.is.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband