Sigţór vann marsmótiđ

Ţrettán keppendur mćttu til leiks á mánađarmót barna í gćr, 9. mars. Mótiđ var mjög skemmtilegt og hart barist um sigurinn. Valt ţar á ýmsu. Damian tók snemma forystuna, en missti hana svo í hendur Vals Darra, sem var efstur fyrir lokaumferđina. Ţá mátti hann ţola tap í langri skák gegn Viacheslav, eftir ađ hafa hafnađ jafntefli. Viacheslav (takiđ eftir breyttri stafsetningu á nafni hans, sem er samrćmd viđ Ţjóđskrá) hafđi hinsvegar í umferđinni á undan misst af einföldum vinningi gegn Sigţóri, ţar sem hann ţvingađi fram jafntefli í vinningsstöđu. Sumt af ţví sem hér er skráđ má skrifa á reynsluleysi, en víst hafa reyndari skákmenn geri sig seka um annađ eins. Mestu skiptir ađ okkar ungu iđkendur taki framförum, sem ţeir greinilega eru ađ gera. Um alla keppendur í mótinu má segja ađ ţeim veitir ekki af frekari ţjálfun, og eru ţó sum ţeirra mjög iđin viđ tafliđ. En lokastađan varđ sumsé ţessi (sex umferđir tefldar):

röđnafnstigf.árvinn
1Sigţór Árni Sigurgeirsson 167820115
2Viacheslav Kramarenko 16672013
 Valur Darri Ásgrímsson 15542012
4Damian Jakub Kondracki 160820084
5Kristian Már Bernharđsson02011
 Gabríel Máni Jónsson 02016
7Yrsa Sif Hinriksdóttir 020123
 Kári Thoroddsen 020123
 Einar Ernir Eyţórsson020113
10Skírnir Sigursveinn Hjaltason02015
 Harpa Hrafney Karlsdóttir 02013
12Dominik W Wielgus 020152
13Kári Sćberg Magnason020141

Ţegar saman eru reiknuđ mánađarmót fyrir ţrjá fyrstu mánuđi ársins hafa ţessir keppendur safnađ flestum vinningum, (hér hagnast ţeir sem tekiđ hafa ţátt í öllum mótunum ţremur)
Sigţór       17
Viacheslav   13
Kristian     11,5
Damian       11
Gabríel Máni 10
Valur Darri   9,5
Einar Ernir   7
Skírnir       6

Tvö mánađarmót eru áformuđ til viđbótar í vor; hiđ fyrra vćntanlega ţann 6.apríl. Ţađ verđur jafnframt svćđismót í skólaskák ţar sem teflt verđur upp á sćti á Landsmóti í skólaskák, sem fer einmitt fram hér á Akureyri dagana 4. og 5. maí.  
    


Bloggfćrslur 10. mars 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband