BSO-mótið
Þriðjudagur, 14. maí 2019
Fimmtudaginn 16. Maí fer fram nýtt mót. Það kallast BSO-mótið, enda er það Bifreiðastöð Oddeyrar sem stendur að því með okkur. Mótið verður haldið í húsakynnum BSO að Óseyri 1a, en það hús kalla gárungarnir Taxeyri. Teflt verður um farandbikar sem Bifreiðastöð Oddeyrar gefur. Einnig verða verðlaunapeningar veittir fyrir 3 efstu sætin. Ekki nóg með þetta, heldur verða veitingar á boðstólum.
Herlegheitin hefjast kl. 20.00 og eru allir velkmonir.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:30 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.