Kónsindversk ský á himni

 

Ţađ blésu hvassir kóngsindverskir vindar um landsmenn í dag, bćđi sunnan og norđan heiđa. Viđ Eyjafjörđ var háđ fimmta umferđ Skákţings Akureyrar og áttunda umferđ Skákţings Reykjavíkur í fenjum syđra. Af norđanvígum er ţađ ađ frétta ađ Símon Ţórhallsson - sem í seinni tíđ hefur tekiđ ástfóstri viđ ofangreinda varnarađferđ - missté sig illilega snemma í skák sinni viđ Sigurđ Eiríksson og mátti játa sig sigrađan. Ástfóstur Rúnars Sigurpálssonar á téđri vörn á sér hinsvegar lengri sögu og varđ honum ekki skotaskuld úr ţví ađ snúa henni í kóngssókn, ţar sem hrókur, drottning og riddari surfu svo ađ kóngi Haraldar Haraldssonar ađ hann mátti gefast upp.  Fráfarandi meistari, Jón Kristinn Ţorgeirsson, ákvađ ađ leika kóngsindverskt stef á flautu sína í ţetta sinn og grípur hann ţó sjaldan til ţess ráđs. Ţađ reyndist honum heldur ekki vel í ţetta sinn; fékk ţrönga stöđu og lagđi fullmikiđ á hana.  Reyndist andstćđingur hans, Andri Freyr Björgvinsson, eiga allskostar viđ meistara fyrra árs, ţvćldi honum í erfitt hróksendatafl sem reyndist Jóni tapađ. Var ţetta önnur tapskák hans í röđ og ţví ljóst ađ hann hreppir ekki hinn eftirsóknarverđa titil í ţetta sinn. Jón hefur ţrjá vinninga og á einni skák ólokiđ, en framar honum eru ţeir Andri Freyr međ fjóra og Rúnar međ ţrjá og hálfan og eiga báđir tvćr skákir eftir, m.a. innbyrđis skák, sem háđ verđur nćsta sunnudag ţegar nćstsíđasta umferđ verđur tefld. Ţá eigast líka viđ ţeir Símon og Haraldur og Benedikt og Sigurđur. Eru ţeir allir miklir vígamenn.

Andri og Jokko 2017Myndin af ţeim félögum var tekin ţegar ţeir áttust viđ á ţessu móti í fyrra.

Sjá stöđuna og öll úrslit á Chess-results

Úr Reykjavíkurhreppi er ţađ ađ frétta ađ Stefáni félaga vorum brást kóngsindverjinn í ţetta sinn og beiđ ósigur fyrir Braga Ţorfinnssyni alţjóđlegum meistara. Hefur Stefán nú vinningsforskot fyrir síđustu umferđ og munu fáir frýja honum vopnfimi í lokasennunni. Ţađ gerum viđ norđanmenn í ţađ minnsta ekki. 


Bloggfćrslur 4. febrúar 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband