Landsmót í skólaskák: Tvímennt á toppnum í báđum flokkum.

Vignir og Hilmir jafntLandsmótiđ í skólaskák hófst á Akureyri í dag og ru fjórum umferđum nú lokiđ. Í eldri flokki hafa tveir stigahćstu keppendurnir, Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson, tekiđ forystuna, međ 3,5 vinning. Ţeir sömdu stutt jafntefli í innbyrđis skák ţar sem hvorugur vildi láta sverfa til stáls.  Ţeir félagar hafa náđ vinningsforskoti á nćstu keppendur, sem eru Nansý Davíđsdóttir, Birkir Ísak Jóhannsson og Stephan Briem.  Nansý hefur átt erfitt uppdráttar ţađ sem af er. Hún á eftir ađ mćta báđum forystusauđunum og teflir viđ Hilmi í fimmtu umferđ í fyrramáliđ.

Í yngri flokki gerđu ţeir Róbert Luu og Benedikt Briem jafntefli í skák sinni í fjórđu umferđ og deila nú efsta sćtinu međ 3,5 vinning hvor. Ţeirra skák var hinsvegar tefld í botn.  Gunnar Erik Guđmundsson er ţriđji međ 3 vinninga og teflir viđ Benedikt í fyrramáliđ.

Fulltrúar okkar heimamanna hafa átt erfitt uppdráttar ţar sem af er, einkum í yngri flokki. Arnar Smári er međ tvo vinninga af fjórum í eldri flokki og má nokkuđ vel viđ una; Gabríel hefur sömuleiđis tvo í yngri flokki; ţeir Ágúst Ívar og Fannar hafa einn vinning hvor.

Eins og komiđ hefur fram fer mótiđ fram í Rósenborg – hinu gamla húsi Barnaskóla Akureyrar viđ Skólastíg.  Teflt er í Félagsmiđstöđinni Tróju, auk ţess sem meirihluti keppenda gistir í húsinu.

Á morgun, laugardag verđa tefldar tvćr umferđir međ keppskákarfyrirkomulagi og hefst fyrri umferđin kl. 10.

Öll úrslit á chess-results: yngri og eldri 


Bloggfćrslur 5. maí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband