Stóra startiđ og Deildó!
Miđvikudagur, 31. ágúst 2016
Félagar eru enn og aftur minntir á Stóra Startiđ á laugardaginn. Ţá er m.a. stefnt ađ liđskönnun fyrir deildó. Ţeir sem ćtlađ ađ tefla fyrir félagiđ í fyrri umferđinni 29. sept-1. okt. eru hvattir til ađ láta vita. Mćata á StóraStart eđa hafa samband viđ formanninn ella!
Komaso!
Stóra startiđ 3. september!
Miđvikudagur, 24. ágúst 2016
Nú ţegar sumri hallar fara kóngar og drottningar á kreik. Riddarar, biskupar og peđ. Og framhjáhlaupin byrja fyrir alvöru.
Viđ hjá Skákfélaginu ćtlum ađ hleypa okkar taflmönnum á skeiđ á STÓRA STARTMÓTINU laugardaginn 3.september. Ţá er meiningin ađ kalla til leiks alla ţá sem peđi geta valdiđ og hafa minnsta grun um ţađ hvernig riddarin hoppar um taflborđiđ. Viđ stefnum ađ fjölmennasta móti norđan heiđa í áratugi - jafnvel aldir. Markmiđiđ er ađ ná saman minnst 40 ţátttakendum.
Stađur og stund: Íţróttahöllin viđ Skólastíg, ath gengiđ inn ađ sunnan um ađaldyr! Laugardaginn 3. september kl. 13.00
Á STÓRA STARTMÓTINU geta keppendur og gestir:
Kynnt sér haustdagskrá Skákfélagsins
Fengiđ sér kaffisopa
Skráđ sig í félagiđ eđa á vinalista á Facebook
Skráđ sig á mót eđa ađra viđburđi félagsins
Tekiđ eina bröndótta
Teflt ţrjár sjö mínútna skákir á Startmótinu - fyrri hluta
Gćtt sér á veitingum í hléi í góđra vina hópi
Teflt allar sjö skákirnar á Startmótinu - fyrri og seinni hluta
Ţeir sem vilja geta sumsé látiđ ţrjár skákir nćgja og hellt sér í veitingarnar eđa ef skákviljinn er brennandi, teflt til ţrautar allat umferđirnar sjö. Umhugsunartími fyrir hverja skák verđur 7 mínútur.
Fjölmörg verđlaun verđa í bođi - ađallega ţó ánćgjan af ţví ađ tefla skák.
Sjáumst öll í höllinni laugardaginn 3. september!
Helgi vann á Hauganesi
Laugardagur, 6. ágúst 2016
Baccalá Bar-mótinu, einu magnađasta hrađskákmóti sumarsins lauk á Hauganesi viđ Eyjafjörđ í gćr. Mótiđ var haldiđ í bođi Baccalá Bar og Ektafisks á Hauganesi ţar sem athafnamađurinn Elvar Reykjalín rćđur ríkjum. Frumkvöđull ađ mótshaldinu var hinsvegar dr. Ingimar Jónsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands m.m., en hann er búsettur á Litla-Árskógssandi, skammt frá Hauganesi. 30 keppendur tóku ţátt í mótinu og tefldu 11 umferđir, sjö mínútna skákir. Međal ţátttakenda voru tveir stórmeistara, tveir alţjóđlegir meistarar og tveir FIDE-meistarar. Keppni á mótinu var afar jöfn og lengi vel voru norđanmenn fjölmennir í forystusveitinni, en ţeim fćkkađi nokkuđ undir lokin. Fyrir síđustu umferđ stóđ baráttan um gulliđ milli ţeirra Helga Ólafssonar og Rúnars Sigurpálssonar og ţegar ţeim síđarnefnda mistókst ađ vinna sína skák var ljóst ađ stórmeistarinn stóđ einn uppi sem siguvegari. Lokaröđ keppenda var ţessi:
Helgi Ólafsson 9
Rúnar Sigurpálsson 8˝
Björn Ţorfinnsson 8˝
Guđmundur Kjartansson 8
Ţröstur Ţórhallsson 7
Haraldur Haraldsson 7
Áskell Örn Kárason 6˝
Jón Kristinn Ţorgeirsson 6˝
Sigurđur Arnarson 6˝
Elsa María Kristínardóttir 6˝
Símon Ţórhallsson 6
Stefán Bergsson 6
Ţormar Jónsson 6
Guđfinnur Kjartansson 6
Loftur Baldvinsson 5˝
Sigurđur Eiríksson 5˝
Kristján Stefánsson 5˝
Guđmundur Freyr Hansson 5˝
Ingimar Jónsson 5
Sveinbjörn Sigurđsson 5
Stefán Arnalds 5
Gauti Páll Jónsson 5
Smári Ólafsson 5
Karl Steingrímsson 5
Jón Arnljótsson 5
Ástţór Björnsson 4
Ulker Gasanova 3
Pétur Axel Pétursson 1˝
Hilmir Vilhjálmsson 1
Ottó Andrés Jónsson ˝
Skákstjóri var Áskell Örn Kárason. Verđlaun á mótinu voru vegleg; auk 100.000 kr. í verđlaunafé, fengu efstu menn gjafabréf fyrir tvo í hvalaskođun (međ mb. Níelsi frá Hauganesi) og kippu af eđalbjórnum Kalda sem bruggađur er í nćsta nágrenni viđ skákstađinn. Sigurvegarinn fékk svo stćrđarinnar hákarlsbeitu frá Ektafiski, auk forláta hálsmens. Keppendur sneru ţví heim sáttir og sćlir og munu mótshaldarar hafa einsett sér ađ endurtaka leikinn ađ ári. Í einu orđi sagt, frábćrt mót!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)